Það er til siðs að velja leikmenn ársins og ég veit ekki hvað og hvað. Ólíkt ákveðnum leikmannasamtökum og fjölmiðlasamtökum þá veitum við okkar verðlaun þegar tímabilið er búið og öll kurl er kominn til grafar en ekki á miðju tímabili
Besta lið: Manchester City
Meistarar í fyrsta skipti í 44 ár. Spiluðu skemmtilegasta og besta boltann og þoldu síðbúið áhlaup frá erkifjendunum hinumeginn í borginni.
Besti þjálfari: Alan Pardew
Það voru margir afar hissa þegar Alan Pardew var ráðinn stjóri Newcastle á sínum tíma. Hann hafði ekki afrekað mikið á ferli sínum en hann er heldur betur að byggja upp orðspor sitt á St. James’s Park. Hann og aðrir stjórnendur liðsins eiga hrós fyrir að byggja upp afar skemmtilegt lið sem hefur staðið sig frábærlega í deildinni. Pardew sýndi svo að hann kann eitthvað fyrir sig í taktíkinni þegar hann breytti uppstillingu liðsins í 4-3-3 sem gerði það að verkum að Hatem Ben Arfa fékk að njóta sín ásamt Papiss Cissé.
Besti leikmaður: Robin Van Persie
Markahæsti maður leiktímabilsins og á tímum virtist sem hann bæri upp lið Arsenal sem var heillum horfið í byrjun tímabilsins. Fyrsta tímabilið í þónokkuð langan tímar þar sem hann helst heill allt tímabilið. Frábær leikmaður og það verður verðugt verkefni fyrir Arsenal að reyna að halda honum á Emirates-vellinum
Bestu kaup: Papiss Cissé
Menn segja að það borgi sig ekki að kaupa í janúar en þeir félagar Gylfi og Cisse afsönnuðu það rækilega. Mörkin hans Cisse fóru langa leið með að tryggja Newcastle meistaradeildar sæti og verður spennandi að fylgjast með honum á næsta tímabili
Verstu kaup: Stewart Downing
Keyptur fyrir stórfé frá Aston Villaen hefur engan veginn staðið undir væntingum. Hefur að mörgu leyti liðið fyrir að framherjar Liverpool virtust á tímabili ófærir um að klára basic dauðafæri. En kantmaður í stóru liði verður að skora og leggja upp fleiri en 2-3 mörk á tímabili, það er bara þannig.
Vonbrigði tímabilsins: Liverpool
Menn voru spenntir í Liverpool í fyrsta sinn í nokkur ár. Peningarnir flutu út og nýjir leikmenn komu í hrönnum fyrir tímabilið. Ekki skemmdi fyrir að Kenny Dalglish, legendið sjálft var við stjórnvölinn. Liverpool olli þó gríðarlegum vonbrigðum og setti ýmis slæm met á leiktímabilinu. Menn reyna að benda á deildarbikarinn sem einhverja sárabót en allir heilvita menn vita að það er deildin sem blívar.
